Konur kúka líka!
16.03.2008 01:06:03 / Salla-San

Bless blogcentral

Ég veit ekki um ykkur en hvað mig varðar get ég ekki lengur skrifað blogg á þessa blog.central síðu. Leiðinlegt að hafa ekki fína Skeinipappírssíðu, þó ekki væri nema til að geyma linka á bloggsíður hjá okkur og vinum okkar. Og því miður er ekki hægt að flytja bloggfærslur nema með copy/paste, nenni því ekki. Svo í staðinn fyrir að stofna enn eina nýja síðu ætla ég að færa nethöfuðstöðvar Skeinipappírs til blogspot. Myndi setja einhverja töff mynd með þessu bloggi ef það væri hægt á þessu blessaða nýja kerfi....Hef bara ekki þolinmæði í drasl sem virkar ekki.

Myndi linka þetta ef ég gæti það but no can do...þið verðið bara að kópera linkinn inn í nýjan ramma...

http://skeinipappir.blogspot.com/

Ég veit að það eru að meðal tali 5 manneskjur á dag sem skoða þessa bleiku síðu...væri gaman að heyra lífsmark...


Nei vitiði hvað...mér snérist hugur. Ég læt þetta að ofan standa. Ég nenni ekki lengur að blogga á Skeinipappírs síðu.

Ég heiti Salvör og ég blogga hér ef ég hef eitthvað að segja:

http://salvorv.wordpress.com/

R.I.P. eða þangað til einhver hefur eitthvað sniðugt að deila á netinu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.03.2008 10:16:56 / Salla-San

París!!!

París!!!
Here I come! úlala víví


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.02.2008 21:36:57 / Salla-San

Adams æbler

Hafiði séð dönsku myndina Adams æbler?
http://www.imdb.com/title/tt0418455/

<a href="http://s2.photobucket.com/albums/y16/sallapj/?action=view&current=AdamsApples.jpg" target="_blank"><img src="http://i2.photobucket.com/albums/y16/sallapj/AdamsApples.jpg" border="0" alt="Photobucket"></a>

Ég var að ljúka við hana rétt í þessu, hafði engar væntingar en varð ekki fyrir vonbrigðum.

Sjáið hana!

Hún er fyndin, vekur upp spurningar, gróf, óvæginn, ljúf, falleg...alllt í einu...
Auk þess er hún vel leikin, fallega tekin og það er alltaf áhugavert að heyra dönsku talaða.
Ef að þetta er ekki nóg til að sannfæra ykkur þá get ég bætt við að þetta hönk í aðalhlutverki:

<a href="http://s2.photobucket.com/albums/y16/sallapj/?action=view&current=madsmikkelsen.jpg" target="_blank"><img src="http://i2.photobucket.com/albums/y16/sallapj/madsmikkelsen.jpg" border="0" alt="Photobucket"></a>




» 0 hafa sagt sína skoðun

24.02.2008 14:08:26 / Salla-San

by:Larm

By:Larm tónlistarhátíðin var haldin nú um helgina í Osló. Ég hefði gjarnan viljað vera þar! En peningaleysi og vinaleysi kom í veg fyrir það.
Engu að síður er ég búin að vera að lesa um hátíðina sem er líklega í góðan gang að verða fyrir Noregi það sem Iceland Airwaves er fyrir okkur, stökkpallur, gullkista nýrra og spennandi hljómsveita, eitt stórt partý sem laðar að jafnt innlenda sem útlenda sem er frábært!
3 íslenskar hljómsveitir voru á hátíðinni: Bloodgroup, Benni Hemm Hemm og FM-Belfast. Hef lítið séð á það minnst í norskum blöðum.
En þeir sem slógu í gegn samkvæmt Aftenposten voru hin sænska 21 árs gamla Lykke Li og hin norska 23 ára gamla Ida Maria. Mæli með þeim báðum!

Ida Maria - Oh My God


Lykke Li - Little Bit


Það er ótrúlega gaman að uppgötva skandinavíska tónlist sem maður á auðveldara aðgengi að hérna megin hafsins.
Fleiri norskar hljómsveitir sem er vert að kynna sér eru t.d. Madrugada, Lukestar, Susanna and the magical orchestra, Ingrid Olava, Sondre Lerche og skrifa fleiri seinna...

Nú er þetta yndislega vetrarfrí á enda, á morgun er það skólinn á ný. Framundan er vika af brjálaðri vinnu, reykleysi, framtíðarplönum, huggulegheitum inná milli og svo fer ég til Parísar næsta mánudag 3.mars.



» 2 hafa sagt sína skoðun

20.02.2008 18:49:11 / Salla-San

Bleee

Var að horfá The Secret aftur í gær.
Þetta er virkilega fallegur og verðugur boðskapur og mér finnst mikilvægt að sem flestir fái að vita "leyndarmálið" hvort sem það er í gegnum þessa mynd eða annað efni, þó að ég sjálf sé ekki að öllu leyti sátt við hvernig myndin sýnir þennan boðskap. Er að downloada What the bleep do we know sem ég hef líka séð áður. Mæli með henni.

Það væri óskandi að maður gæti nýtt sér Law of Attraction í sínu lífi og að vissu leyti geri ég það.

Þess vegna datt mér í hug núna þegar ég er að horfá sjónvarpsfréttirnar um næstkomandi forsetakosningar í BNA að við myndum allavega ekki tapa á því að beina hugsunum okkar að Obama eða Hillary í forsetastólnum, eftir hvað við viljum. En ekki hugsa: "Shit þessi John McCain má ekki verða forseti!". Þá erum við sko nefnilega með því að halda mynd hans í huga okkar að staðfesta ótta okkar og það sem við hugsum kemur til okkar.

 

Æji hvað finnst ykkur? Getur varla skaðað?

Ég hef verið að hugsa um áhrif Bandaríkjanna á restina á jarðkringluna okkar og rifja upp að það eru 8 ár síðan að George W. Bush var kosinn forseti...8 ÁR!!!
Í 8 ár erum við sem manneskjur, jarðarbúar og Íslendingar búin að lifa við áhrif hans og fólksins sem hann sækir að sér í stjórn sína.
Ég vona að við höfum lært eitthvað mjög mikilvægt af þessari reynslu og við getum nýtt okkur hana til hins betra.

Þó að Law of Attraction eða leyndarmálið gerði að verkum að Móðir Theresa sagðist aldrei berjast gegn stríði heldur með friði, og hún hafði rétt fyrir sér, get ég ekki staðist mátið og látið þetta fljóta með, sama hversu hissa og hrygg ég verð yfir að heyra þessa staðfestingu á heimsku og þröngsýni.

Þetta væri bráðfyndið ef þetta væri ekki svona sorglegt.
Held ég ætti samt bara að hlægja eins og brjálæðingur vegna þess að hlátur lengir lífið og þetta fífl verður ekki forseti mikið lengur. Við skulum vona að hann fari á eftirlaun eða gerist grínisti enda er maðurinn meinfyndinn, alltaf í spauginu.

http://www.youtube.com/v/Pa3J-L29iT8&rel=1

http://www.youtube.com/v/moutUEfqUQ4&rel=1

Þessi er ansi góður. Will Ferell sem Bush.
http://www.youtube.com/v/EkqrI3IibYI&rel=1

Nokkuð áhugaverð umræða.
http://www.youtube.com/v/whhbPVrb5KM&rel=1

» 0 hafa sagt sína skoðun

17.02.2008 00:58:04 / Salla-San

Norge rundt

Jæja nú er kominn tími til að blogga meira um landið þar sem ég bý núna nefnilega Noreg.

Áður en systir mín og mágur fluttu hingað vissi ég afskaplega lítið um landið. Ég vissi nefnilega ekkert um hvernig nútíminn var í Noregi. Ég vissi bara um gamla konunga og landnámsmenn. Frændur okkar Norðmenn segjum við. En hvað hugsum við fyrst? Lítill sveinn í norskri ullarpeysu á skíðum með dúskahúfu? Syngjandi norskur hreimur? Hallærisleg lög í Júróvísjón?
Það var a.m.k. mín hugsun. Við lærum jú ekkert í skólanum um Noreg nútímans. Svo ef maður hefur ekki eitthvað sérstakt þangað að sækja þangað kemst maður kanski aldrei í kynni við Noreg. Það fara bara flestir sjálfkrafa til Danmerkur, Köben, Strikið, Hróarskelda...Sem ég skil útaf sögunni.
En ég vil bara segja ykkur að Noregur er fínn staður.

En hvar á ég að byrja?
Það er svo margt að segja frá.
Svo margt sem ég vissi ekki áður en ég kom hingað.

Ætlaði að leggja þvílíkan metnað í þetta blogg og telja upp hluti sem er vert að segja frá. Nenni því ekki akkurat núna.
Segi ykkur meira seinna.

Hugsa að þessi sænski slagari hér fyrir neðan segi meira en þúsund orð en skandinavísk dansiballtónlist er einmitt í miklum mætum hér í Noregi. Svo að þó þetta sé sænskt lag þá er það eitthvað svo norskt fyrir mér. Það er t.d. næstum alltaf tekið í "Beat for Beat" sem er norska útgáfan af "Það var lagið"...

Þetta er Ole Ingvars med lagið Jag Trodde Änglarna Fanns sem er einmitt hægt að finna á plötunni "40 år med Ole Ingvars"...









Om å gjøre å nyte!


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.02.2008 23:14:38 / Salla-San

Sko...

...Mér finnst að við ættum bara að rífa öll gömlu og öll samstæðu húsin í Reykjavíkurborg. Í staðinn munum við byggja hótel. Fullt af hótelum. Þau geta verið hvít og ríkumannaleg. Helst klædd með fallegum og dýrum flísum sem detta svo af þegar vindar byrja að blása. Já hótel. Við þurfum sko hótel til að hýsa alla ferðamennina sem eru æstir í að koma og upplifa menninguna í fallega, græna og vistvæna landinu okkar með fallegustu og bestu stórborg í heimi. Já Ísland er best í heimi! Fullt af hótelum, svo að stjörnur og annað ríkt fólk geti  heimsótt rokrassgatið Reykjavík og skoðað, jah, HÓTEL!


Afsakið mig meðan ég æli! Borgina okkar má svo sannarlega betrumbæta. En þurfum við að fjarlægja fyrst það sem gerir hana að Reykjavík svo við getum byggt upp eitthvað sem hún er ekki? Reykjavíkurmiðbær er ekki bær í Bandaríkjunum þar sem maður keyrir milli bílastæða verslunarmiðstöðva.

Hvað er annars Reykjavíkurborg?
Leikvöllur bissnessfólks sem hefur það aðalmarkmið að fá sem mest fyrir peningana?
Er Reykjavíkurborg fólkið sem býr þar, fólkið sem vinnur þarna, fólkið sem hangir í miðbænum?

» 0 hafa sagt sína skoðun

07.02.2008 23:51:25 / Salla-San

Stundum á maður góðan dag - aðrir eru ekki jafngóðir...

DeLillos \ Tøff i pyjamas

Tekst & musikk: Lars Lillo-Stenberg

Av og til er jeg så dum
At når jeg ser meg i speilet da blir jeg irritert
Og jeg blir dum i pyjamas og jeg blir dum i frakk
Og når jeg går på bussen da skjønner alle at

Her kommer dumme dumme dumme dum
Her kommer dumme dumme dumme dum
Wow wow yeah yeah
Slik går refrenget her

Og av og til er jeg så tøff
At når jeg ser meg i speilet da blir jeg imponert
Og jeg blir tøff i pysjamas og jeg blir tøff i frakk
Og når jeg går på bussen da skjønner alle at

Her kommer tøffe tøffe tøffe tøff
Her kommer tøffe tøffe tøffe tøff
Wow wow yeah yeah
Slik går refrenget her


 


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 16:22:46 / Salla-San

Hvað eru verðmæti? Og hver leggur dóm á gildi þeirra áður og nú í íslensku samfélagi??

Tekið af vef popplands 
 
 
 
"Frá Sirkus til Gljúfrasteins með viðkomu á Cavern Club
Nýliðna helgi fór fram tónlistarveisla á Sirkus við Klapparstíg undir merkjunum "Látíð í bæ". Tónlistarveislan var blásin í gang til að mótmæla niðurrifi menningarminja í miðbænum. Troðið var út úr dyrum allan tímann og hafa margir tjáð sig af tilfinningaþrunga um örlög umræddra húsa...

Popplandi barst í morgun bréf frá einum þeirra sem sótti tónlistarveisluna og lætur sig íslenska tónlist miklu varða og heitir sá Kári Sturluson og er m.a. umboðsmaður Sigur Rósar.

Húsið sem hýsir Sirkus er eitt af þeim sem á að rífa til þess að reisa nýmóðins verslunarhúsnæði, hótel og bílastæði á horni Laugavegs og Klapparstígs í miðbæ Reykjavíkur. Eftirfarandi tónlistarfólk lagði málefninu lið á einn eða annan hátt; 1985!, Amiina, Ampop, Barði Jóhannsson, Benny Crespo´s Gang, Berglind Ágústsdsóttir, Björk, Bob Justman, Benni Hemm Hemm, Bloodgroup, Bogomil Font, Borkó, Botnleðja, Cocktail Vomit, Curver, Dr. Gunni, Dr. Spock, Emilíana Torrini, Esja, Flís, Ghostigital, Gus Gus, Hjaltalín, Hjálmar, Hudson Wayne, Jagúar, Jakobínarína, Jan Mayen, Kira Kira, K.K., Lay Low, Megas og Senuþjófarnir, Mínus, Motion Boys, Mr. Silla & Mongoose, Mugison, Music Zoo, múm, My Summer as a Salvation Soldier, Orgelkvartettinn Ananas, Páll Óskar, Pétur Ben, Rass, Trabant, Retro Stefson, Reykjavík!, Seabear, Singapore Sling, Sigur Rós, Skátar, Skakkamanage, Slowblow, Sometime, Sprengjuhöllin, Valgeir Sigurðsson, XXX Rotweiler, Æla og Ölvis.

Þetta eru engar smákanónur í íslensku tónlistarlífi plús það að nánast allt okkar góða tónlistafólk í þessum geira, sem snúið hefur sér að öðrum verkefnum, leit inn til að taka þátt og sýna stuðning í verki.

Troðfullt var alla helgina á Sirkus og óhætt að segja að kröftulega hafi verið mótmælt inn í þessu litla húsi sem hefur verið órjúfanlegur hluti af tónlistarsögu okkar síðustu 15 árin eða svo.
Því má ekki gleyma að húsið sem Sirkus er í hefur nebnilega líka hýst starfsemi N1 bars og Grand Rokks. Í þessu húsi hafa margar góðar hugmyndir kviknað og margt gott samstarfið hafist. Við íslendingar erum stoltir af því tónlistarfólki sem safnast hefur saman í þessu húsi og þá sérstaklega því sem hefur náð langt erlendis. Saga íslenskrar tónlistar gjörsamlega drýpur af veggjunum enda er hús þetta fyrir löngu orðið heimsþekkt sem höfuðvígi íslenskrar tónlistar og er með réttu orðið að okkar Cavern Club.

Við íslendingar erum líka stoltir af nóbelsskáldinu okkar honum Halldóri Laxness og metum mikils þann menningararf sem hann skyldi eftir sig og tekist hefur að varðveita. Við getum verið þakklát og stolt af því í dag að Gljúfrasteinn Halldórs Laxness er ennþá þar í dag í stað bensínstöðvar með pylsuafgreiðslu.

Reykjavíkurborg gefur sig út fyrir að vera menningarborg.
Tónlistarfólk hefur verið óþreytandi að taka þátt í því að byggja upp öfluga menningarborg með Reykjavíkurborg. Nú glittir í að Reykjavíkurborg ætli að senda öllu þessa góða samstarfsfólki sínu í gegnum árin ansi kaldar kveðjur með því að virða skoðanir þeirra að vettugi. Í uppsiglingu er menningarsögulegt sjálfsmorð Reykjavíkurborgar."


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 23:49:06 / Salla-San

Patrick: It's not everyday you find a girl who'll flash someone to get you out of detention.

Æji Heath Legderinn minn, láttu þér nú líða betur hinumegin...ég sendi þér góða strauma...



Ég þoli ekki mbl.is og visir.is

Hvar á Íslendingur í útlöndum að verða sér úti um vel fluttar, hlutlausar fréttir sem segja eitthvað gagnlegt?
En ekki fréttir sem stýra áliti lesendans og eru þar að auki illa þýddar úr erlendum fréttaveitum?

Ég hef áhyggjur af þessu.

Anders sem átti "Ord for dagen" í morgun er mikill fréttahákur og fylgist vel með þjóð- og heimsmálum. Hann ákvað að fjalla um fréttir í orði fyrir daginn. Hann fann enga nógu merkilega, að honum fannst, svo hann valdi þá ómerkilegustu sem sagði honum ekkert. Sú frétt var ein af mörgum sem birtast af nýjustu uppátækjum Britney, nýjasta partý Amy Winehouse og nýjustu brúnkumeðferð Lindsey Lohan. Hann stakk uppá að það yrði frekar bara svona lítill dálkur á forsíðunni þar sem væri nýjasta updeit á þessum persónum. Við gætum þá séð uppfærðan status á Amy Winehouse: Hvort hún væri í meðferð, í partý eðs full á tónleikum. Og statusinn á Britney: Með heimsóknarétt, svipt ökuleyfi, í partý, nærbuxnalaus eða í réttarsalnum. Við þurfum hvort eð er ekkert að vita meira. Til hvers að flækja þetta með orðaflaumi?
"Og hver les annars þessar ótrúlega ómerkilegu fréttir??..." spurði Anders og bætti svo við "...ég".


Akkurat núna var ég að sjá asnalega þýdda frétt um dauða Heath Ledger á íslenskri fréttasíðu. Strax er farið að blogga og tengja dauða hans fíkniefnum sem var ekki það sem var sagt á cnn og bbc...lík hans fannst umkringt pillum. Bídum aðeins með hleypidómana og leyfum líkinu að kólna áður en við förum að gera ráð fyrir að hann hafi verið djúpt sokkinn í eiturlyf(hvort sem hann svo var það eða ekki).
Ég held einhvernveginn að linkur við hliðiná frétt sem krækir á síðu Jóns og Gunnu útí bæ að blogga sé ekki til þess fallið að vekja traust á fréttamiðlinum og viðhalda hlutleysi fréttarinnar.
Hvað finnst ykkur?


 

» 0 hafa sagt sína skoðun

21.01.2008 23:45:12 / Salla-San

Ööö já semsagt miðbærinn

Öööö hvað er í gangi?

Maður bregður sér út yfir landsteinana og borgarstjórnin springur...aftur!

Hver nennir að pæla í einhverjum gömlum húsum eða gömlu fólki þegar maður þarf að snapa að sér völdum!!!???

Íslensk pólitík er djók!

Þau ættu öll að farað stunda jóga saman eða eitthvað...fara í einn almennilega matarslag og ná biturðinni og barnaskapnum úr kroppnum.

Því þau eru að þykjast vera fullorðin, taka ábyrgð, sækjast eftir völdum fyrir sig og sína, það er sko það sem fullorðnir gera...en svo er þetta bara einn stór slagur í sandkassanum!



Er það furða að ég nenni ekki að ræða pólitík eða pæla alvarlega í henni. Tíkin er bara ein hringiða af spillingu og græðgi og maður nær engri fótfestu.

Ég skil allavega hvorki og upp né niður og dreg bara þá ályktun að Íslendingar og þ.a.l. pólitíkusar séu komnir yfirum á taugum á endalausu "lífsgæða"kapphlaupi...

Ég get svo svarið það. Ef að yndælu konurnar sem afgreiða í Seymu stjórnuðu Íslandi og hell, bara HEIMINUM ÖLLUM þá væri gott að búa hér. Þá myndi maður allavega vita að lýðræðið virkaði, að fólkið sem við kjósum til að stjórna bæru raunverulega hag okkar þegnanna virkilega fyrir brjósti!

Er lýðræði á Íslandi? Ég bara spyr?

Fyrir mér er lýðræði eitthvað jákvætt, en ekki bara atvinnusköpun fyrir fólk sem þénar margfaltt meira en meðalmaðurinn og veit þ.a.l. ekki hvernig meðalmaðurinn hefur það.
Hvenær sér maður t.d. pólitíkus í strætó, nema kanski einu sinni í fréttunum fyrir kosningar? Þeir lepja nú ekki dauðann úr skel og geta þ.a.l. samvisku sinnar vegna, vel sofið á nóttunni án þess að leiða hugann að þeim sem eru minni máttar.

Úffffffffff - þetta er akkurat ástæðan fyrir að ég sleppi yfirleitt að leiða huganum að pólitík, hún pirrar mig bara. Ég vil bara fá að stunda mína list í friði, í einingu með mínum eigin hugsunum.
Djöfulli hlýt ég að vera mikill lúser !

» 0 hafa sagt sína skoðun

19.01.2008 02:36:07 / Salla-San

Áhugavert:

Um miðborg Reykjavíkur

 

Fyrri hluti

 

Seinni hluti

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 13:51:12 / Skeinipappír

Afmælisbarn dagsins er:


Telma okkar!

Til hamingju Svíarfari glæstur! Afmælið þitt kemur senn eins og Villi sagði forðum.

Afmælið þitt er í dag og í því tilefni ætla ég að birta nokkrar gamlar myndir.

 

Til hamingju Telma!

Og góða ferð á morgun :)

Þú átt eftir að brillera og sama hversu erfitt þetta verður þá hefuru alltaf þessar myndir til að hressa þig við ;)

(Er sjálf að fara að veggfóðra hjá mér með myndum af seinasta sumri)

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 13:16:17 / Skeinipappír

Afmælisbarn dagsins er....

Tinna elsku Tinna!

Til hamingju með afmælið þitt!
Við þurfum ekkert að nefna aldurinn frekar en þú vilt.
Pældu samt í því - 2 ár í 25 árin! hahaha

Eigðu góðan dag og hér eftir ætla ég að setja nokkrar gamlar myndir sem fundust á netinu af þér :)

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

09.01.2008 15:06:18 / Salla-San

Hitt kynið

Og afmælisbarn dagsins er......Simone De Beauvoir!

 

 

 

Hún fæddist 9.jan 1908 og dó 1986. Hún var franskur heimspekingur, rithöfundur og femínisti.

Ég hef ekkert lesið eftir hana en alltaf ætlað eftir að ég sá nafn hennar í kvikmyndinni 10 things I hate about you!

Þegar ég gúglaði hana fann ég þetta:

http://en.wikipedia.org/wiki/Simone_de_Beauvoir 

http://www.haskolautgafan.hi.is/Apps/WebObjects/HI.woa/wa/dp?book=1000277&id=1002647 

http://pallkvaran.blog.is/blog/pallkvaran/entry/242904/ 


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1439 dögum
Salvör fer til Parísar!
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1422 dögum
Köben!
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Myndasöfn
Leitarbox

Heimsóknir
Í dag:  0  Alls: 69533